Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

Heilsa og forvarnir gegn sjúkdómum hafa lengi verið okkur hjartans mál. Þrátt fyrir að líftími fólks hafi lengst undanfarna áratugi, hefur fjöldi heilbrigðra æviára dregist saman. Við erum lengur veik með skertum lífsgæðum og lyfjanotkunin ein sú mesta í heiminum. Getur það talist eðlilegt að flestir séu sjúkir á einhvern hátt? Lítum í kringum okkur, þekkjum við einhverja fjölskyldu þar sem ekki eru einhver veikindi á ferðinni? Getur það verið eðlilegt að með hverju ári aukist fjöldi þeirra sem fær sykursýki, krabbamein, Alzheimers-sjúkdóm, Parkinsonsveiki og sjálfsofnæmissjúkdóma eins og Multiple Schlerosis, gigtarsjúkdóma, Chrons-sjúkdóm, skjaldkirtilssjúkdóma og aðra bólgusjúkdóma? Er eðlilegt að á hverju ári deyi mörg hundruð manns af völdum hjarta- og æðasjúkdóma? Og er eðlilegt að við tökum inn lyf fyrir milljarða til að halda niðri einkennum þessara sjúkdóma en ekki að takast á við orsakirnar og lækna þá?

Þessir sjúkdómar sem við nefnum hér hafa verið kallaðir lífsstílssjúkdómar. Hvers vegna? Jú, vegna þess að þeir þekktust varla fyrr en á 20. öld og ef þeir þekktust þá var það í mun minni mæli en á okkar tímum. Þessi sjúkdómar fara nú fremstir í flokki sem orsakir dauðsfalla í heiminum en um 70 prósent dauðsfalla á heimsvísu stafa af þeim. Á Íslandi er hlutfallið um 90%.

Hvernig getum við snúið þessari þróun við og stutt líkamann í að viðhalda heilbrigði ævina út?

Það er ótrúlega góð tilfinning að vita að maður sjálfur getur haft áhrif á heilsu sína – að maður sé ekki bara eins og korktappi úti á rúmsjó sem hefur ekkert að segja um það hvert ferðinni er heitið. Að maður getur virkilega haft áhrif á það hvort maður veikist eða ekki. Við sækjumst flest eftir aukinni vellíðan, orku, heilbrigðu útliti og síðast en ekki síst að geta verið við góða heilsu með börnum okkar og barnabörnum eins lengi og kostur er. Þess vegna skiptir máli að huga að lífsstílnum.

Í þáttunum ætlum við að bjóða upp á fjölbreyttar og fræðandi umræður um allt sem tengist heilsu og heilbrigði, kafa djúpt í heilsutengd málefni og heilbrigðiskerfið og spyrja gagnrýnna spurninga. Við fáum til okkar áhugaverða gesti og sérfræðinga úr heilsugeiranum, auk fólks sem hefur fetað óhefðbundnar leiðir til að takast á við veikindi og sjúkdóma. Áhrifaþættir á heilsu eru svo fjölmargir og af nógu að taka.

Markmiðið er að valdefla okkur og fræðast til heilsueflingar!

Við erum stoltar af því að kynna heilsuherinn okkar - fyrirtæki sem ætla að koma með okkur í þetta heilsuferðalag - til heilsueflingar! 

Bíóbú framleiðir lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur - biobu.is

Brauð&Co - nota lífrænt korn í ekta súrdeigsbrauð - ekkert ger og engin aukaefni - allt búið til á staðnum - braudogco.is

Greenfit - býður upp á heilsumælingar og meðferðir  - styður fólk til betri heilsu - greenfit.is

Húsaskjól - umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist - husaskjol.is

Hreyfing - í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta stöðin sl. fjögur ár samkvæmt Maskínu - hreyfing.is

Nettó - í forystu heilsueflingar á smávörumarkaðnum - með bestu heilsudeild landsins - netto.is

Listen on:

  • Podbean App

Episodes

Monday Apr 27, 2026

Elísabet Reynisdóttir, næringarfræðingur og næringarþerapisti, deilir með hlustendum persónulegri sögu sinni af alvarlegum veikindum og hvernig hún nýtti næringu og andlega rækt til að endurheimta heilsuna. Hún útskýrir muninn á hefðbundinni næringarfræði og heildrænni næringarþerapíu, þar sem lögð er áhersla á samspil líkamlegrar næringar, tilfinninga og lífsreynslu. Rætt er um mikilvægi blóðsykursstjórnunar til að vinna gegn orkuleysi, heilaþoku og lífstílssjúkdómum, auk þess sem fjallað er um áhrif sorgar og streitu á mataræði. Elísabet kynnir nýtt sjö daga námskeið hjá Greenfit sem miðar að því að kenna fólki að stilla efnaskiptin af og bæta bæði líkamlega og andlega líðan með næringarríkri fæðu. 
✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨
🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is
💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is
🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is
🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is
🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is
🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is
🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is
⭐ Protis er nýr samstarfsaðili okkar. Protis framleiðir kaldhreinsaða íslenska fiskolíu úr síld sem inniheldur 1900 mg af omega-3 auk astaxanthins. protis.kavita.is
 
Wednesday Apr 22, 2026

Heiti potturinn fjallar um nýsamþykkt sóttvarnarlög og þær víðtæku valdheimildir sem heilbrigðisráðherra eru færðar í tengslum við farsóttir. Gestur þáttarins er Sigurður Örn Hilmarsson, lögmaður og varaþingmaður, sem lýsir yfir þungum áhyggjum af því að lögin skorti nauðsynlegt lýðræðislegt aðhald og skýran ramma frá Alþingi. Hann gagnrýnir að völdin séu nú að miklu leyti á hendi eins einstaklings sem geti tekið ákvarðanir um verulegar frelsiskerðingar, líkt og útgöngubann, án beinnar rökstuðningsskyldu eða samþykkis þingsins. Í samtalinu er lögð áhersla á mikilvægi þess að rannsaka reynsluna af Covid-19 til að draga lærdóm af efnahagslegum og samfélagslegum áhrifum aðgerða áður en slíkt vald er fest í sessi. Sigurður bendir á að lögin veiti ráðherra nánast óútfylltan tékka til að skilgreina hættur og grípa til ráðstafana sem gætu stangast á við stjórnarskrána. Niðurstaða viðmælenda er að þessi þróun færi völd frá kjörnum fulltrúum til sérfræðingaræðis, sem gæti grafið undan trausti almennings í framtíðinni.
✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨
🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is
💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is
🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is
🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is
🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is
🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is
🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is
⭐ Protis er nýr samstarfsaðili okkar. Protis framleiðir kaldhreinsaða íslenska fiskolíu úr síld sem inniheldur 1900 mg af omega-3 auk astaxanthins. protis.kavita.is

Monday Apr 20, 2026

Í þessu hlaðvarpi fjalla stjórnendurnir Lukka og Jóhanna um endurreisn hugvíkkandi efna í læknisfræðilegum tilgangi og kynna viðtal við frumkvöðulinn Rick Doblin. Hann er stofnandi MAPS og hefur barist fyrir því áratugum saman að MDMA og önnur sambærileg efni verði viðurkennd sem gagnleg verkfæri í geðheilbrigðisþjónustu. Í þættinum er lögð áhersla á að þessi efni geti hjálpað fólki með áfallastreituröskun og erfiðan fíknivanda þegar hefðbundnar leiðir bregðast. Þær ræða einnig nýlegar vendingar í Bandaríkjunum þar sem stjórnvöld hafa sýnt aukinn áhuga á að flýta rannsóknum á þessu sviði. Stjórnendurnir undirstrika mikilvægi þess að meðferðin fari fram undir ströngu eftirliti fagaðila fremur en í ólöglegri afþreyingarneyslu. Að lokum hvetja þær hlustendur til að leggja fordóma til hliðar og skoða hvernig þessi vísindi geta stuðlað að auknum kærleika og lækningu í samfélaginu.
✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨
🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is
💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is
🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is
🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is
🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is
🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is
🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is
⭐ Protis er nýr samstarfsaðili okkar. Protis framleiðir kaldhreinsaða íslenska fiskolíu úr síld sem inniheldur 1900 mg af omega-3 auk astaxanthins. protis.kavita.is

Monday Apr 13, 2026

Hér er á ferðinni skemmtilegt viðtal við Brynhildi Ólafsdóttur, stofnanda Útihreyfingarinnar, þar sem rætt er um mikilvægi þess að rækta líkama og sál í íslenskri náttúru. Brynhildur lýsir því hvernig hreyfingin spratt upp úr þörfinni á að viðhalda góðu formi og félagsskap eftir krefjandi áskoranir, með það að markmiði að vera alltaf tilbúin í ævintýri. Í samtalinu er lögð áhersla á að yfirstíga kuldaótta og nýta fjölbreytileika árstíðanna, enda veitir útivera í öllum veðrum dýrmæta andlega fyllingu og aukna seiglu. Lögð er áhersla á að útivist sé fyrir alla, óháð getu, og að félagsskapurinn og leikgleðin séu lykilatriði í því að rjúfa einangrun og bæta lýðheilsu. Brynhildur hvetur fólk til að stíga út fyrir þægindarammann, vera forvitið og leyfa sér að gera mistök í lærdómsferlinu. Hún á einnig praktísk ráð varðandi fatnað í útivist, deilir ýmsum góðum molum með hlustendum og býður byrjendur velkomna í Úti 101.  Nánar um Útihreyfinguna á utihreyfingin.is.
✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨
🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is
💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is
🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is
🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is
🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is
🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is
🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is
⭐ Protis er nýr samstarfsaðili okkar. Protis framleiðir kaldhreinsaða íslenska fiskolíu úr síld sem inniheldur 1900 mg af omega-3 auk astaxanthins. protis.kavita.is

Monday Apr 06, 2026

🎙️ Í þessum þætti ræðum við við Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði, um það sem skiptir kannski meira máli en margt annað í lífinu: félagsleg tengslin okkar — og hvernig þau móta heilsu okkar, líðan, samfélög og sjálft mannlífið. Viðar hefur talað um mikilvægi „félagslegra töfra“ og bent á að samfélagið sé víða að færast í átt að meiri firringu, einmanaleika og veikari tengslum.
💬 Við ræðum meðal annars:
✨ af hverju félagsleg tengsl skipta gríðarlegu máli fyrir lífsgæði, heilsu og samfélagið allt✨ hvernig við getum ræktað tengslin betur í daglegu lífi✨ af hverju það skiptir máli að hittast í eigin persónu en ekki lifa bara í samskiptum í gegnum skjái✨ hvernig mannleg samskipti byggja á ótal litlum þáttum — augnsambandi, nærveru, svipbrigðum, tóni og tengingu — sem tapast að hluta þegar samskipti færast of mikið yfir á skjáinn✨ af hverju það getur skipt máli að fara út í búð, heilsa fólki, brosa, spjalla og vera hluti af lifandi samfélagi✨ hvernig snjalltækin geta smám saman tekið okkur úr sambandi — við okkur sjálf, hvert annað, samfélagið og náttúruna✨ og hvernig of mikil skjávera getur gert okkur dofnari gagnvart lífinu og minna vön raunverulegum samskiptum
🌿 Þetta er þáttur um það sem heldur samfélögum saman — og því sem gerist þegar við hættum að hittast, hlusta, horfa í augu og vera raunverulega til staðar hvert fyrir annað. Viðar hefur einmitt lagt áherslu á að við þurfum að passa betur upp á félagsleg samskipti og rækta nærsamfélagið okkar með markvissari hætti.
❤️ Þessi þáttur er fyrir öll sem vilja skilja betur hvers vegna tengsl, nærvera og mannleg hlýja eru ekki bara „nice to have“ — heldur ein af undirstöðum góðs lífs.
✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨
🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is
💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is
🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is
🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is
🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is
🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is
🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is
⭐ Protis er nýr samstarfsaðili okkar. Protis framleiðir kaldhreinsaða íslenska fiskolíu úr síld sem inniheldur 1900 mg af omega-3 auk astaxanthins. protis.kavita.is

Monday Mar 30, 2026

Í þessum þætti ræðum við við Auði Kjartansdóttur, framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Reykjavíkur, landfræðing, snjóflóðasérfræðings, afreks- og útivistarkonu, um einstakt gildi náttúrunnar í lífi okkar og samfélagi.
Við förum yfir mikilvægi Heiðmerkur, vatnsverndarsvæðin og þær áskoranir sem felast í mögulegri lokun stórs hluta svæðisins. Auður bendir á að náttúran og sú heilsa, ró og tenging sem hún veitir fólki hafi oft ekkert skýrt verðmiði í ákvörðunum samtímans. Náttúran hefur ekkert fasteignamat og það að vera í tengslum við hana hefur ekki alltaf viðurkennt, mælanlegt verðmæti í kerfinu — þótt raunverulegt gildi hennar sé ómetanlegt.
Í þættinum ræðum við líka um hvað það þýðir að vera manneskja í tengslum við náttúruna, hvernig hún styður við líkamlega og andlega heilsu og hvers vegna stjórnmálamenn og þeir sem taka ákvarðanir bera ríka ábyrgð á að átta sig á þessum verðmætum, vernda þau og varðveita til framtíðar.
Og síðast en ekki síst ræðum við um vatnsvernd og geislun stórs hluta drykkjarvatns Reykjavíkur.
 
✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨
🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is
💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is
🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is
🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is
🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is
🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is
🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is
⭐ Protis er nýr samstarfsaðili okkar. Protis framleiðir kaldhreinsaða íslenska fiskolíu úr síld sem inniheldur 1900 mg af omega-3 auk astaxanthins. protis.kavita.is
 
Tuesday Mar 24, 2026

Hér er rætt við Erlu Guðmundsdóttur, einnig þekkt sem Heilsuerla, sem er íþróttafræðingur, fjölhæfur heilsufrumkvöðull og stjórnandi hlaðvarpsins "með lífið í lúkunum" 
Heilsa er eins og þriggja fóta stóll: Erla lýsir heilsu sem vellíðan þar sem þrír þættir þurfa að vera í jafnvægi: líkamlegur, andlegur og félagslegur. Hún líkir þessu við þriggja fóta koll; ef maður einblínir of mikið á til dæmis líkamlegu hliðina (mataræði og æfingar) en vanrækir þá félagslegu, þá dettur stóllinn og jafnvægið fer. Hún leggur áherslu á að við berum sjálf ábyrgð á okkar lífsgæðum, eða eins og heitið á hlaðvarpinu hennar gefur til kynna, við höfum „lífið í lúkunum“.
Vöðvar eru „lífeyrissjóður líkamans“: Þó að konur á miðjum aldri geti oft verið hræddar við að lyfta lóðum til að stækka ekki um of, er styrktarþjálfun gríðarlega mikilvæg. Vöðvavef má kalla einskonar lífeyrissjóð líkamans því hann verndar meðal annars gegn beinþynningu og tryggir betri lífsgæði og sjálfstæði á efri árum. Erla er sjálf lifandi sönnun þess, en hún byrjaði nýlega að keppa í ólympískum lyftingum og náði frábærum árangri á heimsmeistaramóti öldunga (45-49 ára) í Las Vegas.
Hættan á að „klessa á vegg“: Erla segir opinskátt frá því þegar hún keyrði sig út fyrir nokkrum árum. Hún var þá að vinna mikið, keppa í CrossFit, sinna börnunum og glíma um leið við óunna áföll vegna eineltis á vinnustað. Líkaminn endaði á að stoppa hana af. Til að jafna sig þurfti hún að setja sér mörk, minnka pressuna og breyta sýn sinni á hreyfingu; til dæmis með því að nota göngutúra í náttúrunni sem heilandi hreyfingu og slökun í stað þess að pína sig alltaf á erfiðar æfingar.
Að mæta í Himnastigann á Nýársdag: Eitt árið setti Erla sér það markmið að hreyfa sig í 365 daga í röð. Hún fagnaði áfanganum á nýársdag með því að bjóða fólki að ganga með sér upp „himnastigann“ í Kópavogi. Viðburðurinn sló í gegn og hefur undið upp á sig síðan þá; árið 2026 mættu til dæmis yfir 3.000 manns til að byrja nýja árið á jákvæðri hreyfingu.
Svefn og þakklæti: Af daglegum heilsuvenjum setur Erla 8 klukkustunda svefn í algjöran forgang. Ein fallegasta venjan hennar er að skrifa í þakklætisdagbók á kvöldin áður en hún sofnar. Þar byrjar hún á að spyrja sig „hvernig líður mér?“, skrifar niður jákvæðar staðhæfingar og það sem hún er þakklát fyrir. Með þessu tæmir hún hugann og fer inn í svefninn með jákvæðar hugsanir í stað þess að horfa á sjónvarp eða vera í símanum.
Mikilvægi ungbarnasunds og snjallsímalausra stunda: Erla hefur verið ungbarnasundkennari í yfir 20 ár og bendir á að sundið snúist ekki bara um að vera í vatni, heldur sé þetta ómetanlegur tími fyrir tengslamyndun (húð við húð) og augnsamband milli barns og foreldris. Hún vísar einnig til sálfræðitilraunarinnar „Still Face Experiment“ til að benda á hversu hættulegt það getur verið fyrir taugakerfi og líðan ungbarna þegar foreldrar eru stöðugt með athyglina í snjallsímanum og sýna barninu engin svipbrigði. Í ungbarnasundinu er síminn ekki nálægt og foreldrið getur verið 100% til staðar.
 
✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨
🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is
💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is
🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is
🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is
🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is
🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is
🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is
⭐ Protis er nýr samstarfsaðili okkar. Protis framleiðir kaldhreinsaða íslenska fiskolíu úr síld sem inniheldur 1900 mg af omega-3 auk astaxanthins. protis.kavita.is

Monday Mar 16, 2026

Monday Mar 09, 2026

Monday Mar 02, 2026

✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨
⭐ Protis er nýr samstarfsaðili okkar.Protis framleiðir kaldhreinsaða íslenska fiskolíu úr síld sem inniheldur 1900 mg af omega-3 auk astaxanthins.
Samsetningin er hönnuð til að styðja við liðheilsu, sjón og húð og setur ný viðmið í gæðum og innihaldi olía.
🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is
💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is
🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is
🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is
🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is
🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is
🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. Kíkið á tilboðin á netto.is

Copyright 2024 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125