Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms
Heilsa og forvarnir gegn sjúkdómum hafa lengi verið okkur hjartans mál. Þrátt fyrir að líftími fólks hafi lengst undanfarna áratugi, hefur fjöldi heilbrigðra æviára dregist saman. Við erum lengur veik með skertum lífsgæðum og lyfjanotkunin ein sú mesta í heiminum. Getur það talist eðlilegt að flestir séu sjúkir á einhvern hátt? Lítum í kringum okkur, þekkjum við einhverja fjölskyldu þar sem ekki eru einhver veikindi á ferðinni? Getur það verið eðlilegt að með hverju ári aukist fjöldi þeirra sem fær sykursýki, krabbamein, Alzheimers-sjúkdóm, Parkinsonsveiki og sjálfsofnæmissjúkdóma eins og Multiple Schlerosis, gigtarsjúkdóma, Chrons-sjúkdóm, skjaldkirtilssjúkdóma og aðra bólgusjúkdóma? Er eðlilegt að á hverju ári deyi mörg hundruð manns af völdum hjarta- og æðasjúkdóma? Og er eðlilegt að við tökum inn lyf fyrir milljarða til að halda niðri einkennum þessara sjúkdóma en ekki að takast á við orsakirnar og lækna þá?
Þessir sjúkdómar sem við nefnum hér hafa verið kallaðir lífsstílssjúkdómar. Hvers vegna? Jú, vegna þess að þeir þekktust varla fyrr en á 20. öld og ef þeir þekktust þá var það í mun minni mæli en á okkar tímum. Þessi sjúkdómar fara nú fremstir í flokki sem orsakir dauðsfalla í heiminum en um 70 prósent dauðsfalla á heimsvísu stafa af þeim. Á Íslandi er hlutfallið um 90%.
Hvernig getum við snúið þessari þróun við og stutt líkamann í að viðhalda heilbrigði ævina út?
Það er ótrúlega góð tilfinning að vita að maður sjálfur getur haft áhrif á heilsu sína – að maður sé ekki bara eins og korktappi úti á rúmsjó sem hefur ekkert að segja um það hvert ferðinni er heitið. Að maður getur virkilega haft áhrif á það hvort maður veikist eða ekki. Við sækjumst flest eftir aukinni vellíðan, orku, heilbrigðu útliti og síðast en ekki síst að geta verið við góða heilsu með börnum okkar og barnabörnum eins lengi og kostur er. Þess vegna skiptir máli að huga að lífsstílnum.
Í þáttunum ætlum við að bjóða upp á fjölbreyttar og fræðandi umræður um allt sem tengist heilsu og heilbrigði, kafa djúpt í heilsutengd málefni og heilbrigðiskerfið og spyrja gagnrýnna spurninga. Við fáum til okkar áhugaverða gesti og sérfræðinga úr heilsugeiranum, auk fólks sem hefur fetað óhefðbundnar leiðir til að takast á við veikindi og sjúkdóma. Áhrifaþættir á heilsu eru svo fjölmargir og af nógu að taka.
Markmiðið er að valdefla okkur og fræðast til heilsueflingar!
Við erum stoltar af því að kynna heilsuherinn okkar - fyrirtæki sem ætla að koma með okkur í þetta heilsuferðalag - til heilsueflingar!
Bíóbú framleiðir lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur - biobu.is
Brauð&Co - nota lífrænt korn í ekta súrdeigsbrauð - ekkert ger og engin aukaefni - allt búið til á staðnum - braudogco.is
Greenfit - býður upp á heilsumælingar og meðferðir - styður fólk til betri heilsu - greenfit.is
Húsaskjól - umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist - husaskjol.is
Hreyfing - í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta stöðin sl. fjögur ár samkvæmt Maskínu - hreyfing.is
Nettó - í forystu heilsueflingar á smávörumarkaðnum - með bestu heilsudeild landsins - netto.is
Episodes

Monday Dec 15, 2025
Monday Dec 15, 2025
🎄 Gestur þáttarins: Kristjana Steingrímsdóttir – Jana heilsukokkur
Í þessum þætti spjöllum við við Kristjönu Steingrímsdóttur – Jönu, heilsukokk, heilsuráðgjafa og skapandi matgæðing sem hefur farið einstaka vegferð í eldamennsku og hollustu.
Jana var um árabil kokkur á Happ veitingastaðnum í Lúxembúrg, sem enn í dag er talinn einn sá besti og þekktasti á sínu sviði.
Árið 2022 flutti Jana heim til Íslands, þar sem hún hefur síðan helgað sig því að kenna fólki að elda holla, einfalda og skapandi rétti, fara út fyrir boxið og njóta matar með meiri meðvitund – án þess að fórna bragði eða gleði.
🥗 Í þættinum ræðum við meðal annars:
Vegferð Jönu
Jólagúmmelaði með heilsuívafi – hvernig má njóta jólanna án samviskubits
Heilsusamlegt jólakonfekt og nammi – einfaldar, sniðugar og girnilegar uppskriftir
Flott meðlæti á jólaborðið
Ráð til að undirbúa vikuna í matargerð – skipulag, einfaldleiki og tímasparnaður
Fjölskyldan og eldamennskan – hvernig börn og fjölskylda taka þátt í matargerðinni
Hvernig Jana hjálpar fólki að vera skapandi í eldhúsinu og finna sína eigin leið
Jana er þekkt fyrir að gera hlutina aðgengilega, fallega og raunhæfa. Hún sýnir að hollur matur þarf ekki að vera flókinn, leiðinlegur eða takmarkandi – heldur getur hann verið skemmtilegur, fjölbreyttur og hátíðlegur.
Á vefsíðunni hennar jana.is má finna fjölda uppskrifta, fróðleik og innblástur fyrir daglegt líf og hátíðir.
Þáttur fyrir alla sem elska mat, heilsu, jólin – og að prófa eitthvað nýtt.
Hér fyrir neðan eru nokkrar uppskriftir sem Jana sagði okkur frá.
✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨
🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is
💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is
🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is
🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is
🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is
🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is
🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is
Frosnir nammi molar (ca 18 molar)
Hráefni:
2 * 180 gr dósir grísk jógúrt sem þú elskar **
3 msk saxaðar pistasíur
3 msk þurrkuð trönuber
50 gr brætt dökkt gæða súkkulaði
Aðferð:
Byrjið á að hræra grísku jógúrtina við pistasíurnar og trönuber.
Setjið ca 1 matskeið af blöndunni í litlar hrúgur á bökunnarpappírs klæddan disk sem passar í ykkar frysti.
Bræðið súkkulaðið og dreifið yfir molana - frystið yfir nótt og njótið
**ef þú notar hreina gríska jógúrt er gott að blanda smá vanillu og sætu og hræra vel saman
Hollustu nammimolar með trefjum, og frábærri næringu
Bleikir molar
Hráefni:
3 bollar kókosmjöl
1 bolli möndlumjöl
1/3 bolli fljótandi kókosolía
1/3-1/2 bolli fljótandi sæta t.d. Akasíu hunang eða hlynsýróp
1 tsk vanilla
1 msk gott rauðrófuduft
Smá salt
Aðferð:
Blanda saman í skál og gera annaðhvort kúlur eða þetta niður og skera í litla bita og frysta
Geymist í frysti í 2-3 mánuði
Grænu molar
Hráefni:
3 bollar kókosmjöl
1 bolli möndlumjöl
1/3 bolli fljótandi kókosolía
1/3-1/2 bolli fljótandi sæta t.d. Akasíu hunang eða hlynsýróp
1 tsk vanilla
1/2-1 tsk gott gæða matcha duft
Smá salt
Aðferð:
Blanda saman í skál og gera annaðhvort kúlur eða þetta niður og skera í litla bita og frysta
Geymist í frysti í 2-3 mánuði
Súkkulaðikúlur
Hráefni:
1,5 bolli valhnetur (ma lika nota möndlur / kasjúhnetur)
14 mjúkar steinlausar döðlur
2 msk kakóduft
1 msk kókosolía (brædd)
Börkur og safi úr 1 lífrænni appelsínu( ma sleppa )
½ tsk vanilludropar
Örlítið salt
(Valfrjálst:1 dropi piparmyntuolía fyrir frískandi bragð)
Aðferð:
Allt sett í matvinnsluvélina og blandað vel saman. Mótaðu í litla bita eða kúluform, eða þrýstu í form og skerðu í mola, hægt að velta upp úr kókosmjöli eða kakó dufti. Kældu í ísskáp í 30 mínútur áður en þú nýtur þeirra. Mér finnst gott að geyma í boxi í frysti og næla mér í kúlu og kúlu.
Alhliða sítrus–hunangs dressing
Fullkomin á salöt, grænmeti, fisk, kjúkling og jafnvel ofan á ristað rótargrænmeti.
Hráefni:
6 msk extra virgin ólífuolía
2 msk sítrussafi (sítróna, lime eða appelsína – má blanda)
1 tsk eplaedik eða balsamik (ljóst)
1-2 msk náttúruleg sæta (t.d hunang eða hlynsíróp )
1 tsk Dijon sinnep (valfrjálst en er voða gott)
Salt og nýmalaður pipar eftir smekk
Aðferð:
Settu allt saman í krukku, skrúfaðu lokið á og hristu vel saman. Smakkaðu til með salti og pipar.
Auðvelt að breyta :
Fyrir meiri ferskleiki: rifinn lífrænn sítrónubörkur
Fyrir meiri dýpt: smá tahini eða hvítlauksrif
Skemmtilegt twist að setja ferskar kryddjurtir út í eins og saxað basil, dill eða kóríander
Asískt twist: skiptu ediki út fyrir hrísgrjónaedik og auka dropa af ristaðari sesamolíu og smá chili flögur

Monday Dec 08, 2025
Monday Dec 08, 2025
Gauti Grétarsson er sjúkraþjálfari og stofnandi Sjúkraþjálfunar Reykjavíkur. Hann hefur meira en fjörutíu ára reynslu af því að vinna með fólki á öllum aldri – frá handboltakrökkum til eldri kylfinga – og hefur skapað sér sérstöðu með beinskeyttri, heildrænni og gagnreyndri nálgun á lýðheilsu og forvarnir.
Gauti hefur jafnframt stýrt þjálfunarhópnum AGGF – Afrekshópi Gauta Grétarssonar fimleikastjóra – sleitulaust frá stofnun hans árið 1989.
Í þættinum ræðir hann um sex lykiláhrifaþætti sem hann telur að sé óhjákvæmilegt að hlúa að – bæði í afreksþjálfun og í „afrekum“ okkar allra í daglegu lífi.
✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨
🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is
💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is
🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is
🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is
🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is
🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is
🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is

Monday Dec 01, 2025
Monday Dec 01, 2025
„Að fylgja innri áttavitanum“ - Samtal við Björn Skúlason eiginmann forseta Íslands, heilsukokk og frumkvöðul
Í þessum þætti fáum við að kynnast Birni Skúlasyni, eiginmanni forseta Íslands, á persónulegan og opinskáan hátt. Hann ræðir heilbrigði, lífsstíl, karlmennsku og tilgang – og hvernig hans eigin vegferð hefur mótað þá ákvörðun að nota nýja stöðu sína til að gera gagn í samfélaginu.
Björn segir frá því þegar hann kvaddi fjármálageirann til að fylgja hjartanu og læra matargerð í New York, og hvernig samband hans við Höllu hjálpaði honum að treysta eigin innsæi. Hann talar um ábyrgðina sem fylgir því að vera í sviðsljósinu og ástríðu sína fyrir lýðheilsu, forvörnum og skýrari fræðslu til almennings.
Við ræðum mataræði, tilraunir hans með ólíkar fæðutegundir og hvernig hann hefur fundið hvað hentar honum best. Hann talar opinskátt um sykurnotkun, vítahringi daglegs lífs og mikilvægi þess að fræða fólk um einföldar, raunhæfar leiðir til betri heilsu. Hann deilir einnig skoðunum sínum á GLP-1 lyfjunum og þeirri umræðu sem hefur þróast í kringum þau.
Björn segir frá eldamennskunni heima – þar sem hann sér alfarið um matseldina og finnur mikið skapandi frelsi og gleði. Hann talar um karlmennsku, mýkt, hugleiðslu og hvernig þetta hefur bætt líf hans og samskipti. Þá rifjar hann upp skemmtilegar sögur úr opinberum heimsóknum og áhrifaríka ferð til Tansaníu sem hafði djúpstæð áhrif á hann.
Þátturinn er einlægt, heiðarlegt og fræðandi spjall um heilsu, sjálfsþekkingu og það að fylgja innri áttavitanum.
✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨
🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is
💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is
🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is
🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is
🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is
🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is
🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is

Monday Nov 24, 2025
Monday Nov 24, 2025
✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨
🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur.
💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu.
🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum.
🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu.
🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist.
🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins fjögur ár í röð samkvæmt Maskínu.
🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins.

Monday Nov 17, 2025
Monday Nov 17, 2025
✨ Í þessum þætti fáum við til okkar Auði Bjarnadóttur, sem hefur kennt jóga í 25 ár og á að baki langan feril sem ballettdansari.
Við ræðum hvað jóga er í grunninn, hvað það stendur fyrir og hvernig það tengir saman líkama, huga og anda. Við skoðum líka mikilvægi þess að tengjast hinu andlega, hvernig jóga getur orðið leið til meiri innri friðar, skýrleika og innri styrks.
Auður segir frá því hvað vakti áhuga hennar á jóga og hvernig ferðalagið hófst. Við tölum einnig um líkamsstöðu, hvernig hún hefur áhrif á líðan okkar og hvernig jóga getur hjálpað til við að opna, rétta úr, styrkja og skapa jafnvægi í daglegu lífi.
Þá deilir Auður góðum og hagnýtum ráðum sem hún sjálf notar í tengslum við beinþynningu.
Þátturinn er fyrir alla sem vilja dýpka skilning sinn á jóga og leita að leiðum til að efla vellíðan, hamingju og tengingu við sjálfa sig, aðra, náttúruna og æðri mátt.
💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur:
🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur.
💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu.
🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum.
🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu.
🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist.
🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins fjögur ár í röð samkvæmt Maskínu.
🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins.
✨ Við þökkum öllum samstarfsaðilum kærlega fyrir að vera hluti af Heilsuhernum – á leið til betri heilsu fyrir alla.

Monday Nov 10, 2025
Monday Nov 10, 2025
Magasýrur, melting og næring – þegar vísindin og reynslan mætast
Í þessum þætti spjöllum við við Elísabetu Reynisdóttur, næringarþerapista og næringarfræðing, sem hefur áratuga reynslu á sviði heilsu og næringar. Samræðan spannar víðan völl — frá magasýrum og meltingu yfir í samsetningu máltíða, vítamín, og dýpri spurningar um hvernig við getum hlustað á líkamann.
Við ræðum meðal annars:
🔬 Magasýrur og melting: hvers vegna magasýra er mikilvæg fyrir upptöku næringarefna og hvaða hættur geta fylgt langvarandi notkun magasýruhamlandi lyfja.
🍽️ Matarsamsetningar: er betra að borða prótein og kolvetni sitt í hvoru lagi?
🌞 Vítamín: Beta segir okkur frá sögunni þegar Rannsóknarstofa næringarfræðinnar á Íslandi hótaði að kæra hana til Landlæknis í byrjun Covid fyrir að ráðleggja stóra skammta af D, A og C-vítamínum í grein á mbl.is.
🇮🇹🇨🇭 Reynsla erlendis: hvað hún lærði á Ítalíu og í Sviss, og hvernig sú þekking hefur mótað sýn hennar á heilsu og jafnvægi líkamans.
Þetta er hlýtt og forvitnilegt spjall, þar sem fræðin, reynslan og innsæið mætast – með áherslu á að skilja líkama okkar betur og efla eigin heilunarmátt.
💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur:
🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. Minnum á lífræna ísinn þeirra og sítrónu grísku jógúrtina.
💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. Nýtt jólabragð komið - og svo má ekki gleyma creatine happy hydrate.
🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. Geggjuð lagkaka mætt á svæðið fyrir jólin.
🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is
🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is
🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins fjögur ár í röð samkvæmt Maskínu. Hægt að skrá sig á námskeið og kaupa gjafakort í SPA-ið þar fyrir jólin.
🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins - minnum á lífræna merki Nettó Ánglamark - geggjað í baksturinn fyrir jólin.

Monday Nov 03, 2025
Monday Nov 03, 2025
🌿 Í þessum þætti hittum við Þórdísi Skúladóttur, sem eftir áralanga þrautargöngu með mikla verki, meltingarvandamál, Hashimoto-sjúkdóm, Sjögrens, vefjagigt og mikla lyfjanotkun ákvað að taka heilsuna í eigin hendur.
Þórdís tók mataræðið í gegn – prófaði alls konar en endaði á ketó mataræði, byrjaði að taka háa skammta af D-vítamíni og Curcumin olíu, og segir að það hafi bókstaflega gjörbreytt lífi sínu.
Í dag, 64 ára gömul, er hún lyfjalaus, verkjalaus og full af orku – og hefur aldrei liðið betur.
Hún deilir ferðalaginu, lærdómnum og hvernig það sem virtist ómögulegt varð að veruleika.
✨ Saga hennar er mikil hvatning um að taka ábyrgð á heilsunni okkar og sýnir okkur hve mikil áhrif við getum haft til að snúa við sjúkleika, fyrirbyggja sjúkdóma og viðhalda vellíðan og heilbrigði.
https://heilsuhringurinn.is/2021/01/16/dr-coimbra-hefur-nad-storkostlegum-arangri-med-ofurstorum-skommtum-af-d3-vitamini/
💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur:
🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur.
💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu.
🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum.
🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu.
🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist.
🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins fjögur ár í röð samkvæmt Maskínu.
🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins.
✨ Við þökkum öllum samstarfsaðilum kærlega fyrir að vera hluti af Heilsuhernum – á leið til betri heilsu fyrir alla.

Monday Oct 27, 2025
Monday Oct 27, 2025
✨ Í þessum þætti fáum við í heimsókn Hrund Gunnsteinsdóttur rithöfund, lífsspeking, fyrirlesara og ráðgjafa sem gaf nýverið út bókina InnSæi og hefur í dag helgað líf sitt því að hjálpa fólki að tengjast innsæinu sínu og efla það.✨
Hún hefur komið ótrúlega víða við á sínum starfsferli en það var mjög erfið reynsla sem hún gekk í gegnum sem starfsmaður Sameinuðu Þjóðanna í Kosovo eftir stríðið á Balkanskaga sem leiddi Hrund á braut innsæisins. Rétt liðlega þrítug lenti hún á vegg, tapaði áttum og fór í gegnum myrka tíma.
✨ Eina leiðin út úr því ástandi var leiðin inn á við og það ferðalag varð upphafið að lífi í samhljómi við innsæið sem hún hefur ásett sér að lifa ávallt eftir.
🪷 Við ræðum:
🌿 Hvað er innsæi - og hvernig það tengist greind og heilsu
💖 Af hverju það er mikilvægt að næra, tengjast og hlusta á innsæið - hvernig getur það hjálpað okkur á lífsins braut
🌸 Hvað rannsóknir sýna um innsæi
💎 Hvernig við getum styrkt innsæið með einföldum en reglulegum æfingum
💖 Skilaboð Hrundar snerta svo sannarlega hjartað og eru innblástur til að lifa lífinu í fullri vitund og í meiri tengingu við okkar innsta sjálf, aðra og náttúruna - og þá gerast kraftaverkin.
👉 hrundgunnsteinsdottir.com
-------
💚 Þátturinn er í boði Heilsuhersins, okkar frábæru samstarfsaðila sem styðja heilbrigðan lífsstíl á Íslandi:
🥦 Bíóbú – nærandi mjólkurvörur úr lífrænni íslenskri mjólk með meira af hollum fitusýrum en vörur úr mjólk sem er ekki lífræn 💚🍞 Brauð & Co – handgerðar kræsingar og súrdeigsbrauð með ást og ástríðu - allt lífrænt og ekkert rusl 🥖
💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu.
💪 Hreyfing – heimili hreyfingar, vellíðunar og samfélags - kosin besta líkamsræktarstöð landsins mörg ár í röð 💫🛒 Nettó – aðgengilegt og fjölbreytt úrval hollra matvæla - stefnir að flottustu heilsudeild landsins 🌱🏡 Húsaskjól fasteignasala – með hjartað á réttum stað þegar heimili skipta máli ❤️ Meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist.🥗 Spíran veitingahús í Garðheimum – ferskir og bragðgóðir réttir - ekta heimilismatur og allt búið til frá grunni 🌿

Monday Oct 20, 2025
Monday Oct 20, 2025
🌸 Í þessum þætti fáum við til okkar Teklu Hrund Karlsdóttur lækni, sem hefur mikla reynslu og brennandi áhuga á efnaskiptaheilsu, frumustarfsemi og heilbrigðum lífsstíl.Hún vinnur á mörkum hefðbundinnar læknisfræði og nýrra nálgana — með áherslu á að skilja líkamsstarfsemina, orku og hvað við getum gert til að fyrirbyggja sjúkdóma og koma á jafnvægi í líkamsstarfseminni.
✨ Við ræðum m.a.:⚖️ Hvað efnaskiptaheilsa raunverulega þýðir🧪 Hvaða mælikvarðar segja til um efnaskiptavillu🔋 Hlutverk hvatberanna – orkustöðva líkamans💚 Hvers vegna lifrin og glútaþíon skipta öllu máli fyrir hreinsun og orku🦴 Yfirhreyfanlega liði – hvað einkennir fólk með slíka liði og hvernig það tengist heilsu og líðan
💬 Tekla deilir innsýn, reynslu og hagnýtum ráðum sem geta hjálpað þér að skilja líkamsstarfsemina betur og efla heilsuna 🌿
🤝 Þátturinn er í boði Heilsuhersins, okkar frábæru samstarfsaðila sem styðja heilbrigðan lífsstíl á Íslandi:
🥦 Bíóbú – nærandi mjólkurvörur úr lífrænni íslenskri mjólk með meira af hollum fitusýrum en vörur úr mjólk sem er ekki lífræn 💚🍞 Brauð & Co – handgerðar kræsingar og súrdeigsbrauð með ást og ástríðu - allt lífrænt og ekkert rusl 🥖
💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu.
💪 Hreyfing – heimili hreyfingar, vellíðunar og samfélags - kosin besta líkamsræktarstöð landsins mörg ár í röð 💫🛒 Nettó – aðgengilegt og fjölbreytt úrval hollra matvæla - stefnir að flottustu heilsudeild landsins 🌱🏡 Húsaskjól fasteignasala – með hjartað á réttum stað þegar heimili skipta máli ❤️ Meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist.🥗 Spíran veitingahús í Garðheimum – ferskir og bragðgóðir réttir - ekta heimilismatur og allt búið til frá grunni 🌿

Monday Oct 13, 2025
Monday Oct 13, 2025
🌙 Allt um svefninn með Dr. Erlu Björnsdóttur 💤
Í þessum afar fræðandi og áhugaverða þætti fáum við til okkar Dr. Erlu Björnsdóttur, svefnsérfræðing og doktor í líf- og læknavísindum, sem hefur sérhæft sig í hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi (HAM-S) og vinnur að rannsóknum á svefni í samstarfi við vísindamenn í Evrópu og Bandaríkjunum.
Við ræðum:
🌙 Af hverju við sofum – og hvað raunverulega gerist í líkamanum og heilanum í mismunandi stigum svefnins
🧬 Hvernig svefn tengist ónæmiskerfi, þyngdarstjórnun og hvatberum
🔹 Hvað gerist þegar við sofum of lítið – og hvernig við getum bætt svefngæðin
🕯️ Hvernig dægursveiflan stjórnar líkamlegum ferlum og hversu mikilvæg birtan og myrkrið eru fyrir svefngæði
🌅 Hlutverk melatóníns, “næturhormónsins”, og hvernig lífstíll, skjátími og ljós á kvöldin hafa áhrif á framleiðslu þess
🛏️ Hugsanleg áhrif uppgufunar eiturefna úr svampdýnum og efnum í rúmum á svefngæði og heilsu
💊 Áhrif svefnlyfja og geðlyfja á svefninn
😮💨 Umræða um kæfisvefn, einkenni hans og lausnir sem virka
🌸 Svefnvandamál á breytingaskeiði kvenna
📱 Nýja SheSleep-verkefnið og svefnappið sem Erla hefur þróað til að styðja konur við að bæta svefninn með vísindalegum aðferðum
💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur:
🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur.
💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu.
🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum.
🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu.
🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist.
🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins fjögur ár í röð samkvæmt Maskínu.
🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins.
🌱 Spíran er fjölskylduvænn bístróstaður í Garðheimum sem leggur áherslu á hollan og góðan mat – gerðan frá grunni úr gæða hráefnum. Þar fær fjölskyldan að njóta nærandi rétta sem styðja við heilsuna.
✨ Við þökkum öllum samstarfsaðilum kærlega fyrir að vera hluti af Heilsuhernum – á leið til betri heilsu fyrir alla.
