Monday Feb 24, 2025

Una Emilsdóttir sérnámslæknir í atvinnu- og umhverfislæknisfræði um eiturefni í umhverfinu og hvernig við getum verndað okkur sjálf og þá sem okkur þykir vænst um.

Una Emilsdóttir sérnámslæknir í atvinnu- og umhverfislæknisfræði fjallar um eiturefni í umhverfinu og hvernig við getum verndað okkur sjálf og þá sem okkur þykir vænst um. Una leggur sérstaka áherslu á að vernda fóstur á meðgöngu og ung börn því þau eru viðkvæmari fyrir hormóna- og taugaraskandi áhrifum sem ýmis efni í vörum í umhverfi okkar eru talin geta valdið.  Hún ræðir við okkur um samhengi efnanna við sjúkdóma sem hafa á síðustu áratugum orðið sífellt algengari eins og ofvirkni, athyglisbrest og einhverfu. 

Una fræðir okkur einnig um hvernig við getum forðast ýmis skaðleg efni með því að vanda valið þegar kemur að matvöru, hreinsiefnum, snyrtivörum, heimilisáhöldum og jafnvel húsbúnaði og málningu. 

 

Við erum stoltar af því að kynna heilsuherinn okkar - fyrirtæki sem ætla að koma með okkur í þetta heilsuferðalag - til heilsueflingar! 

Bíóbú framleiðir lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur

Brauð&Co - nota lífrænt korn í ekta súrdeigsbrauð - ekkert ger og engin aukaefni - allt búið til á staðnum

Greenfit - býður upp á heilsumælingar og meðferðir  - styður fólk til betri heilsu 

Happy Hydrate  - Þinn besti æfingafélagi - einstök blanda af steinefnum og söltum sem hraðar endurheimt og bætir vökvajafnvægi.

Hagkaup - býður upp á úrval hreinna ferskra matvæla, lífrænna matvara og bætiefna 

Húsaskjól - umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist

Hreyfing - í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta stöðin sl. fjögur ár samkvæmt Maskínu

Saltverk - sjálfbært, hreint, óunnið íslenskt salt - þurrkað með jarðhita og inniheldur frá náttúrunnar hendi öll stein- og snefilefni

Copyright 2024 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125