2 days ago

Sigurður Örn Ragnarsson um Greenfit, heilsumælingar, hámarkssúrefnisupptöku, árangur í íþróttum, langlífi, rauðljósameðferð, súrefnismeðferð og margt fleira.

SIgurður Örn Ragnarsson er verkfræðingur, ólympíuþjálfari og margfaldur Íslandsmeistari í þríþraut. Hann nýtir verkfræðilega þekkingu og aðferðir í að kortleggja heilsu viðskiptavina Greenfit og hjálpa þeim að ná markmiðum sínum hvort sem markmiðin snúa að því að efla heilsu og fjölga heilbrigðum æviárum eða ná betri árangri í íþróttum.  Sigurður Örn er margfaldur Íslandsmeistari í þríþraut og eini Íslendingurinn sem hefur náð að vinna alþjóðlega keppni í þríþraut og það gerði hann í Barcelona á Spáni 2022. Hann segir okkur hvaða mælingar geta haft best forspárgildi um heilsu og langlífi - t.d. hvað hámarkssúrefnisupptaka þín segir um þig. Einnig segir hann frá helstu meðferðum sem Greenfit býður upp á svo sem rauðljósa-, kulda-, og súrefnismeðferð.  

 

Heilsuherinn styður útgáfu Heilsuhlaðvarps Lukku og Jóhönnu Vilhjálms og eftirfarandi fyrirtæki eru meðlimir heilsuhersins - til heilsueflingar! 

Bíóbú framleiðir lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur

Brauð&Co - nota lífrænt korn í ekta súrdeigsbrauð - ekkert ger og engin aukaefni - allt búið til á staðnum

Greenfit - býður upp á heilsumælingar og meðferðir  - styður fólk til betri heilsu 

Happy Hydrate  - Þinn besti æfingafélagi - einstök blanda af steinefnum og söltum sem hraðar endurheimt og bætir vökvajafnvægi.

Hagkaup - býður upp á úrval hreinna ferskra matvæla, lífrænna matvara og bætiefna 

Húsaskjól - umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist

Hreyfing - í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta stöðin sl. fjögur ár samkvæmt Maskínu

Copyright 2024 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125